Velkomin(n) á bigg.is

Hér á síðunni eru nokkur brot af því sem að okkur finnst skemmtilegast að gera, smíða og leika okkur að hinu ýmsu sem við finnum í kringum okkur.

Þú finnur sniðugu lausnirnar á bigg.is

Hugsanír mínar

Veggmyndir

Eftir að hafa unnið síðustu vikur að því að smíða nýjar bækur og endurvinna eldri bækur þá er kominn smá pása í ritverkin. Þá er gott að fara í myndaalbúmið og fara í smá endurmenntun í myndvinnslu. Fyrir nokkru þá var ég að leika mér að smíða pop-art myndir eða klippimyndir, það voru komnar tvær myndir …

Frændi minn kenndi mér

Rétt fyrir jólin í fyrra þá átti ég lítið spjall við tvo félaga mína, en þeir voru í miklum vandræðum með að finna nettar littlar jólagjafir fyrir aðra félaga sína, vinni og vandamenn. Þar sem að ég er frekar lausnamiðaður einstaklingur þá sagði ég við þá að ég skyldi ekki láta þetta koma fyrir þá …

Um bigg.is

Sælt veri fólkið. Ég er Birgir Ólafsson, oftast kallaður Biggi (nema þegar að móðir mín er að lesa mér pistilinn).

Síðust ár hef ég verið að smíða klippimyndir úr gömlum kvikmyndaplaggötum og setja mig inn í myndirnar. Þannig bý ég til litla smásögu í kringum hverja mynd þar sem að ég er búin að skipta út þerri persónu fyrir og setja mig í staðinn. Myndirnar eru svo birtar á föstudögum með fyrirsögninni „HAPPY FRIDAY„.

Ásamt því þá smíða ég líka ýmsar bækur, barnabækur, kennslubækur, teiknimyndasögur og kannski eina eða tvær skáldsögur.

Við getum nú ekki stoppað þar, svo að ég smíða líka borðspil, póstkort og teiknaðar myndir sem skraut fyrir ýmis herbergi (WC er vinsælast).

Skoðið ykkur um, það er hægt að finna ýmislegt eftir bigg.is inni á facebook og Instagram einnig.

Gleymdi ég að minnast á hljóðbækur?

Komdu þér í samband

Hæ, Biggi hérna. Eins og er þá er ég upptekin á skíðum eða eitthvað þvíumlíkt. En ef þig vantar að ná á mér þá getur þú skilið eftir skilaboð á facebook síðunni minni og ég mun hafa samband um leið og ég get. Takk fyrir.